Léttar fréttir og annað efni
08.01.2012 00:48:11 / moneypenny

Tilkynning um að Moneypenny hættir

Sæl og blessuð

Nú er svo komið að það eru um það bil 2 ½ ár síðan ég byrjaði að skrifa bloggið mitt inn á moneypenny.blogcentral.is. Ég ætlaði að halda áfram að skrifa stuttar umfjallanir á nýja árinu en finnst vera kominn tími til að setja punktinn við. Síðasta almenna bloggið kemur inn á moneypenny fljótlega og verður um heilsurækt sem höfundur ætlar að tileinka sér meira í ár. Mér hefur þótt reglulega gaman að skrifa umfjallanir um sérkennilegar og áhugaverðar fréttir bæði af visir og mbl. Kærar þakkir fyrir góðar undirtektir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.12.2011 01:44:29 / moneypenny

Tvær fréttir sem ég rakst á

Sælir lesendur góðir

Ég rak augun í nokkuð athyglisverða frétt á mbl.is á dögunum um lestur breskra barna sem er umhugsunarvert en fréttirnar eiga að vera léttari en þessar tvær. Fyrirsögn fréttarinnar er  ,,19% aldrei fengið bók að gjöf“. Eitt af hverjum þremur börnum í Bretlandi á ekki bók eða um 4 milljónir barna. >>

Hefur bókalausum börnum fjölgað frá árinu 2005 þegar eitt af hverjum tíu átti ekki bók. Þetta er niðurstaða könnunar sem samtök um læsi þjóðarinnar létu gera.Talsmaður samtakanna sagði þessar niðurstöður mikið áhyggjuefni því bókaeign tengdist velgegni barnanna á fullorðinsárum. Börn sem lesa bækur geta oft sigrast á öðrum hindrunum auðveldar en jafnaldrar sem lesa ekki.

Börn lesa minna af bókum og af tölvuskjá en áður en horfa jafnframt meira á kvikmyndir og myndir í tölvum. Könnunni náði til 18.000 barna á aldrinum 11-16 ára. 19% sögðust aldrei hafa fengið bók að gjöf, 12% sögðust aldrei hafa komið inn í bókabúð. Stúlkur voru aðeins líklegri en drengir til að eiga bók.

Heimild: Morgunblaðið. 2011, 10. desember. ,,19% barna aldrei fengið bók að gjöf."

 http://www.mbl.is/frettir/taekni/2011/12/05/19_prosent_aldrei_fengid_bok_ad_gjof

Einnig rakst ég á sérkennileg frétt og töluvert sorglegri um mann sem fannst látinn í íbúð sinni eftir að hafa legið þar í rúmt 1 ½ ár. Fyrisögn fréttarinar er ,,Var látinn í íbúð í 1½“ Lík af karlmanni fannst nýlega í íbúð fjölbýlishúsi í Randers í Danmörku. Talið er að maðurinn hafi legið í íbúðinni í 1½ ár.

Ekki er enn búið að bera formlega kennsl á líkið en talið vera af 58 ára gömlum manni sem bjó í íbúðinni. Fram kemur á vef Jyllands Posten að lögregla hafi ekki heldur geta slegið því föstu hver dánarorsök mannsins hefur verið því er málið rannsakað formlega sem glæpamál þótt ekki er nein sérstakur grunnur að lát mannsins hafi borið að með voveiflegum hætti.

Lögreglan segir að maðurinn sem bjó í íbúðinni, hafi verið eftirlaunaþegi og hafi fengið greidd eftirlaun inn á bankareikning. Hann var í greiðsluþjónustu hjá bankanum og því reikningar svo sem fyrir húsaleigu, rafmagni og hita greiddir sjálfkrafa. Síðast sást til mannsins í apríl 2010 og þá tók hann líka út pening af bankareikningi sínum.

Nýlega snéri forsvarsmaður húsfélags fjölbýlishússins sér til lögreglu vegna þess að vond lykt barst  úr íbúð mannsins. Lögreglumenn brutust inn í íbúðina og fundu líkið á gólfinu. Lögreglan hefur ekki borið formlega kennsl á líkið eins og áður sagði.

Íbúinn í íbúðinni hefur ekki farið til tannlæknis lengi og því ekki fundist neinar tannlæknaskrár sem hægt væri að bera saman við líkið. Þá hefur DNA rannsókn ekki leitt til endanlegrar niðurstöðu. Íbúinn átti enga nána ættingja. Lögreglan hefur haft samband við fjarskylda ættingja hans en enginn þeirra hefur átt við hann samskipti. 

Heimild: Morgunblaðið. 2011, 10. desember ,,Var látinn í íbúð í 1 ½ ár“

http://www.mbl.is/frettir/erlent/2011/12/08/var_latinn_i_ibud_i_1_ar/


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.09.2011 23:56:53 / moneypenny

Ungfrú heimur og dæmdur fyrir að rífa í hár sonar síns

Sælir lesendur góðir

Ég var að skoða áhugaverðar fréttir á mbl.is í dag og sá frétt um fegurðarsamkeppnina Ungfrú heim sem var valin síðustu nótt en fyrirsögn fréttarinnar er ,,Fegursta kona heims."  Leila Lopes  25 ára kona frá Angóla var kjörin fegursta kona heims. Fegurðarsamkeppnin Ungfrú heimur fór fram að þessu sinni í Sao Paulo, Brasilíu. Þetta er fyrsta skipti að kona frá Angóla hreppir þennan titil.

Lopes sagði eftir sigurinn að hún hefði nú þegar unnið að góðgerðarmálum sem Ungfrú Angóla. ,,Ég starfa með fátækum börnum, vinn gegn HIV, reyni að aðstoða aldraða og þjóð mína. Ég tel að sem ungfrú heimur get ég gert mun meira." Lopes svaraði spurningu blaðamanna hvort hún hafi einhverntíman gengið undir fegrunaraðgerð sem svo að hún hafi aldrei gengið undir fegrunaraðgerð.

Bestu fegrunarráðin að hennar mati væri að sofa nóg, nota sólarvörn og drekka mikið af vatni. Þá sagði hún að brosið hefði verið hennar besta vop í keppninni. Í keppninni var Lopes spurð hvaða líkamlegu einkenni hún myndi breyta ef hún gæti, hún svaraði: ,,Ég er afar sátt við hvernig guð skapaði mig og ég myndi ekki breyta neinu. Ég tel mig hafa fengið innri fegurð í vöggugjöf og fjölskylda mín hefur innrætt mér marga góða siði sem ég ætla að fylgja til æviloka."

Alls kepptu 98 stúlkur um titilinn Ungfrú heimur í Sao Paulo á 60 ára afmæli fegurðarsamkeppninnar. Olesa Stefanko frá Úkraníu varð önnur, Priscila Machado frá Brasilíu varð í þriðja sæti. Íslendingar tók ekki þátt í keppninni að þessu sinni.

Morgunblaðið. 2011, 13. september. ,,Fegursta kona heims."

Vefslóð: http://www.mbl.is/folk/frettir/2011/09/13/fegursta_kona_heims/

Önnur sérkennileg frétt sem ég rak augun í  er um mismunandi menningarheima þjóða. Fyrirsögnin á fréttinni er ,,Dæmur fyrir að rífa í hár sonar síns." Ítalskur faðir var í héraðsdómi í Svíþjóð í dag dæmdur til að greiða 6.600 sænskar krónur, í sekt fyrir að rífa í hár 12 ára gamals sonar síns á veitingastað í Stokkhólmi.

Frá árinu 1979 hefur verið bannað með lögum í Svíþjóð að beita börn líkamsrefsingu og skipti engu að ítalska fjölskyldan væri í sumarleyfi og en ekki íbúar í landinu. Ítalski faðirinn Giovanni Colasante 45 ára er stjórnmálamaður frá Suður-Ítalíu. Colasante fjölskyldan var í gamla hluta Stokkhólms í síðasta mánuði og ákvað að fá sér að borða á veitingastað.

Sonurinn heimtaði að fá pizzu í matinn og stakk af þegar hann fékk ekki vilja sínum framgengt. Faðirinn elti drenginn og þreif í háls hans og hár, vegfarandi varð vitni að atburðinum og hringdi á lögregluna sem handtók Colasante fyrir ofbeldi geng drenginum. Þrátt fyrir að hafa neitað því að hafa beitt drenginn ofbeldi heldur að koma í veg fyrir að drengurinn stingi af var dæmdur til þess að greiða sekt fyrir athæfið.

Morgunblaðið. 2011, 13. september. ,,Dæmdur fyrir að rífa í hár sonar síns."

Vefslóð: http://www.mbl.is/frettir/erlent/2011/09/13/daemdur_fyrir_ad_rifa_i_har_sonar_sins/

Þetta er loka bloggfærslan í bili en ég ætla að taka mér hlé frá í c.a 3 mánuði og mætta frísk aftur eftir þann tíma. Vonandi haldið þið áfram að lesa eftir þetta stutta hlé. Kærar þakkir fyrir að vera dugleg að lesa bloggin á  moneypenny.blogcentral.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2011 21:53:46 / moneypenny

Nýtt frá Coldplay og frétt af Matt Damon

Sælir lesendur

Ég rakst á eina frétt á vísir.is um daginn vegna nýju plötunnar með Coldplay sem kemur út í október. Platan ber heitið Mylo Xyloto og er fimmta plata hljómsveitarinnar, Chris Martin segir að hljómsveitin hafi byrjað snemma að vinna plötuna eftir mikla hvatningu frá Brian Eno sem vann með þeim að síðustu plötu þeirra Viva La Vida sem vakti mikla lukku.

,,Við vorum frekar ágnæðir með okkur þegar við kláruðum Viva La Vida og okkur þótti við hafa gert góða plötu" Sagði Chris Martin. Brian Eno skrifaði hljómsveitinni bréf og sagði að Coldplay geti gert miklu betur. Martin segir að þeir hafi lagt allt sitt í nýju plötuna Mylo Xyloto og vildi bæta því við að honum finnst eins og hver plata sem hann líkur við virðist vera sú síðasta sem hljómsveitin gerir.

Aðspurður hvort Coldplay taki upp plötur sínar með aðdándur sína í huga bar hann plötur saman við samlokur. Við gerum ekki plötur fyrir okkur, við erum ekki að þessu til að selja milljónir. Við erum ekki að þessu fyrir gagnrýnendur við erum að þessu fyrir fólk svo það geti gengið inn búð og keypt plötuna okkar og sagt ,,þetta er gott" Það er það eina sem skiptir máli."

Heimildir dagsetning 14.08 2011

http://www.visir.is/nyja-platan-god-eins-og-samloka/article/201170813997

Önnur frétt sem ég rak augun í er frétt um leikarann Matt Damon en hollywoodleikarinn Matt Damon er nefndur til sögunar sem næsti hugsanlegi forsetaframbjóðandi frjálslyndra vestanhafs sem mótvægi við Barack Obama. Kvikmyndagerðarmaðurinn Michale Moore var fyrstur til að nefna Matt Damon þegar hann lýsti gremju sinni með störf Obama en margir vinstrimenn telja Barack Obama hafa virt málstað þeirra að vettugi.

Aðsjálfsögðu fór fréttin um stjórnmálamannin Matt Damon eins og eldur um sinu í netheimum þá helst á bloggsíðum og í fréttamiðlum í Bandaríkjunum. Leikarinn hefur ekkert tjáð sig um feril í stjórnmálum. Damon hefur samt reglulega tjáð sig um stjórnmál á undanförnum árum og virðist hafa sterkar skoðanir á ólíkum málaflokkum allt frá stríðinu í Írak til menntamála. Hann hefur gagnrýnt Barack Obama fyrir að hafa meðhöndlað umboð sitt og embætti illa.

Heimildir dagsetning 14.08 2011

http://www.visir.is/matt-damon-naesti-forseti-bandarikjanna

> >


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.07.2011 01:19:15 / moneypenny

Bréf 53 ár á leiðinni og Harper Seven Beckham

Sælir lesendur góðir

Ég rak augun í frétt á vefnum sem var titluð ,,Ástarbréf 53 ár á leiðinni" og vakti fréttin stax áhuga minn. Ástarbréf sem ætlað var Clark. C Moore fyrir 53 árum og skrifað af unnustu hans fannst fyrr í mánuðinum. Hann var þá nemandi í háskóla í Pennsylvaníu bréfið  fannst í póstherbergi skólans. Þrátt fyrir að bréfið hafi ekki skilað sér í pósti til hans gegnu þau í hjónaband.

Það var ekki auðvelt að finna viðtakand bréfsins en hann hafði breytt nafni sínu í Muhammad Siddeeq fyrir margt löngu. Vinur hans sem sá frétt um bréfið í sjónvarpinu kannaðist við kauðann og lét vita hver réttmætur eigandi bréfsins væri. Muhammad sem er 74 ára er spenntur yfir því að sjá bréfið þó að hjónin eru skilin og eiga fjögur börn saman.

http://www.mbl.is/folk/frettir/2011/07/17/astarbref_53_ar_a_leidinni/

Önnur frétt sem ég rak augun í er um nafnið á dóttur Beckham hjónana. Stúlkan fékk nafnið Harper Seven og heitir í höfuðið á höfundi á To Kill a Mockingbird sem skrifuð er af Harper Lee. Aðsögn David Beckham er hún eftirlætis bók Victoriu en um að ræða stórkostlega bók. Hann segir að það ríki misskilingur um að töluna sjö megi eingöngu rekja til treyju hans hjá ensku meisturunum í Manchester United.

Aðalástæðan fyrir því að þau völdu töluna sjö er hversu táknræn hún er sjö undurveraldar, sjö litir regnbogans, talan er einnig happa tala í mörgum menningarheimum. ,,Við elskum nafnið og elskum Harper Seven. Við erum mjög hamingjusöm að hún er hluti af lífi okkar og fjölskyldu okkar. Þetta eru stórkostlegir tímar í fjölskyldu okkar." Skrifaði David Beckham á facebook síðu sína

Beckham hjónin hafa nýtt sér tæknina við að birta myndir af dóttur sinni og eru myndir að finna á Twitter síðu Victoriu og á Facebook síðu David Beckham.

Nokkrar staðreyndir um meistarverkið To Kill a Mockingbird sem Árni Matthíasson fann til á síðasta ári þegar 50 ár voru liðin frá útgáfu bókarinnar. Bókin kom út 11.júlí 1960 en Harper Seven Beckham er fædd 10. Júlí 2011. Harper Lee var hálffertug þegar bókin kom út og er enn í fullu fjöri en hefur reyndar alla tíð haldið sér frá sviðsljósinu og tók ekki þátt í neinum afmælisfagnaði vegna bókarinnar.

Hún er hefur þá skoðun að rithöfundar eiga að leyfa bókum sínum að vera í sviðsljósinu en höfundar þeirra að halda sér til hlés. Flestir sem hafa lesið bókina telja hana vel skrifaða, spennandi og fella í sér sannleik. Söguþráðurinn fjallar um upplogna ásökun um nauðgun og réttarhöld sem fylgja í kjölfarið, fordóma barna og hvernig þeir endurspegla fordóma fullorðna. Það kemur alls ekki á óvart að bókin hefur verið gírðarlega vinsæl en Árni veltir fyrir sér hvers vegna hún hefur verið talin besta bandaríska skáldsaga allra tíma.

 Samnefnd kvikmynd var gerð eftir skáldsögunni en hún kom út tveimur árum eftir að bókin var gefin út árið 1962. Gergory Peck einn af stórleikurum þess tíma leikur þar Atticus Finch sem er faðir sögu hetjurnar Scoutt eins og hún er ávallt kölluð. Kvikmyndin er talin með bestu kvikmyndum sögunar vestanhafs. Bandaríska kvikmyndaráðið taldi hana 25. bestu kvikmynd sögunar og bestu réttarsalsmyndina.

Atticus Finch er talin besta kvikmyndahetja 20. aldarinnar en þegar betur er að gáð er líklegt að kvikmyndin hefur haft áhrif á vinsældir bókarinnar To Kill a Mockingbird sem er snildar verk og ekki síður kvikmyndin að mati Árna Matthíassonar á afmæli bókarinnar fyrir ári síðan.

http://www.mbl.is/folk/frettir/2011/07/17/nefnd_eftir_harper_lee/

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.07.2011 18:22:44 / moneypenny

Dó úr hræðslu og kvartanir frá verðandi tegndamóður

Sælir  lesendur góðir

Ég var að lesa fréttir inni á mbl.is og rakst á eina furðulega frétt um konu sem dó úr hjartaáfalli en það átti upptök sín út frá hræðslu. Konan sem var frá borginni Kazan í Rússlandi var talin látin þangað til að hún vaknaði í miðri jarðarför sinni. Fagilyu Mukhametzyanov 49 ára gömul var ranglega útskurðuð látin af læknum í borginni.

Jarðarförin var í kjölfarið haldin fljótlega en við miðja athöfnina vaknaði hún þar sem hún var umvafin syrgjandi ættingjum. Fagilyu öskraði af ofsahræðslu þegar hún áttaði sig á því að stutt væri í að hún væri grafin lifandi. Hún var keyrð í skynd á sjúkrahúsið í Kazan þar sem læknarnir höfðu gert þessi læknamistök.

Eiginmaðurinn hennar var í miklu uppnámi yfir þessum atburð þegar hann talaði við innlenda fjölmiðla. ,,Augu hennar flöktu og við komum henni strax upp á sjúkrahús. Hún lifið aðeins í tólf mínútur eftir að þangað var komið."  Hann sagðist ætla að hefja málsókn gegn sjúkrahúsinun í Kazan.

,,Ég er mjög reiður yfir þessu og vil fá svör. Hún var ekki látin þegar þeir sögðu að hún væri látin. Þeir höfðu getað bjargað lífi hennar" sagði hann. Talsmaður sjúkrahúsins sagði að yfirvöld væru að rannsaka tildrög dauða Fagilyu Mukhametzyanov. Sagt er frá þessari frétt í vefútgáfu New York Daily Mail.

http://www.nydailynews.com/news/world/2011/06/24/2011-06-24_russian_woman_fagilyu_mukhametzyanov_dies_at_her_own_funeral_after_being_mistake.html#ixzz1QOb96XXf

Önnur frétt sem ég rakst á var um unga konu í Bretlandi sem var gagnrýnd af verðandi tegndamóður sinni.  Carolyn Bourne sendi unnustu stjúpsonar síns Heidi Withers 29 ára tölvupóst  um mannasiði og hve henni þykir væntanlegt brúðkaup þeirra dýrt. Carolyn Bourne 60 ára skrifaði tölvupóstin eftir að Freddie Bourne 29 ára kynnti brúður sína fyrir fjölskyldu sinni.

Heidi sem var furðulostin sendi póstinn áfram á nokkra vini sína sem sendu áfram á aðra. Fljótlega komst bréfið á vefsíðu og var lesið um allan heiminn.  Í bréfinu segir Carolyn að það er komin tími á að einhver gagnrýni mannasiðina hennar. Einnig segir hún ,,Svo óheppilega fyrir Freddie að hann er orðin ástfangin af þér, Þar sem Freddie er ekki auðveldlega hvatur eða sannfærður um að hann væri að hjálpa þér.

Nokkrir atriði um hvað Carolyn sendi henni í tölvupóstinum, Þegar þú er gestur á heimili annarra þá setur þú ekki skilyrði um hvað þú borðar og hvað þú borðar ekki, nema að þú sért vissulega með ofnæmi fyrir einhverju matarkyns. Þú gagnrýnir ekki heimilið að þú fáir ekki nóg að borða og byrjar ekki að borða á undan heimilisfólkinu. Þú liggur ekki í rúminu langt fram eftir morgni heldur reynir að tileinka þér venjur heimilisfólksins.

Þú giftir þig ekki í kastala nema að þú eigir hann þetta gera stórstjörnurnar. Það er skilningur minn að fjölskyldan þín geti ekki látið mikið rakna af hendi í brúðkaupið ykkar. Það er ekkert rangt við það en samkvæmt venjum hefði fjölskyldan geta lagt eitthvað til hliðar í gegnum árin. Þá væri dömulegt og lítilátlegt að lækka viðmiðin þín fyrir brúðkaupið svo að báðar fjölsyldunar gætu látið eitthvað að hendi í látlaust brúðkaup. 

http://www.thesun.co.uk/sol/homepage/news/3668138/Rude-bride-feels-mum-in-laws-hate.html

http://www.mbl.is/folk/frettir/2011/06/30/tengdadottir_tekin_a_teppid/


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.06.2011 22:31:47 / moneypenny

Stætisvagnar í Reykjavík

Lesendur góðir

Eins og ef til einhverjir muna hóf ég skriftir mínar á moneypenny um strætisvagna Reykjavíkur og nágrenni. Ég skrifaði bloggið fyrir rúmu 1 og hálfu ári síðan en það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan þá. Bensínverð hefur hækkað, gjöld í strætó hafa hækkað og borgin hefur skorið niður ferðir stætisvagna á kvöldin og síðasta ferðin þeirra úr bænum er rétt eftir kl 22:00.

Borgin hefur í gegnum árin verið að hvetja fólk til að taka stætisvagna til að minnka umferð og vera umhverfisvæna. Það er hægar sagt en gert að fara að ráðum aðstanda borgarinnar þegar þeir hækka fargjöld vegna hærra bensínverðs á heimsmarkaði og fækka ferðum. Stakkt gjald fyrir fullorðin er núna í kringum kr 350 og fyrir börn í kringum kr 160 og þykir mörgum þetta í hærra lagi fyrir eina ferð í strætó.

Ég hef heyrt fólk kvarta undan sumaráætlun strætó, fólk verður að fara á milli staða jafn mikið á sumrin og á veturna. Ég geri mér fulla grein fyrir því að þegar námsmenn fara í sumarfrí þá rýnar notkun stætisvagna en hvað með fólk sem notar strætó til að fara í og úr vinnu? Hvað með ferðamennina sem nota strætó til að skoða sig um borgina og nágrenni? Hvað með fólk sem notar strætó til daglegrar notkunar.

Einnig er stundum tímafrekt að ferðast með strætó og sérstaklega ef þú ert ekki kunnug/ur stætisvagna áætluninni og hvernig best er að ferðast með strætó. Það tók mig í kringum hálftíma að fara frá austurbæ upp í Smáralind í vor þegar ég tók nr 11 og 24 tók ferðin minnstan tíma. Það er kannski bara ágætlega sloppið en alltaf leiðinlegt að bíða í langan tíma á milli ferða ef þú ert það óheppin/n að missa af strætó.

Ef horft er á góðar hliðar stætisvagnanna þá eru þeir hlýir á veturna og þegar blaut er úti á sumrin. Vagnarnir eru mjög snyrtilegir og vinalegir. Einnig eru þeir að mestu leyti á réttum tíma og það borgar sig að vera mættur tímanlega á stoppustöðina. Aðrir góðir kostir við strætó er að þú getur fengið þér gula, græna, rauða og blá kortið sem borga sig fljótt upp fyrir fólk sem býr í Reykjavík og nágrenni.

Því miður er gula, græna, rauða og blá kortið alltof dýrt fyrir fólk sem býr á Akranesi, Hveragerði og Selfossi. Ég skil að vegalengdirnar er lengri en verðin eiga að vera í samræmi við það sem fólkið er borga í Reykjavík það á ekki að mismuna fólk fyrir að búa annarstaðar en í höfuðborginni. Fólk er að sækja nám og vinnu í Reykjavík þeir gætu þá að minnstakosti slegið á einhverskonar afslátt fyrir þetta fólk.

Þetta eru eingöngu mínar skoðanir sem ég skrifa inn á þessa bloggsíðu og algjörlega óháð.


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.05.2011 00:06:27 / moneypenny

Meira Eurovison

Sæl og blessuð

Í kvöld er seinni forkeppni Eurovison ég býst við að þessi riðill sé svipaður á við fyrri riðillinn sem Ísland tók þátt í. Frábær árangur hjá Vinum Sjonna síðasta þriðjudag og gangi þeim ofsalega vel í aðalkeppninni 14. maí n.k. Það er mikill spenna hjá þeim sem ég hef talað við og ekki allir á eitt sammála um hvar Ísland lendir í keppninni. Flestir halda í kringum fyrstu 10 sætin sumir sem eru á neikvæðari nótum og tala um 16 sætið.

Ég tel að við getum hæglega lent í 8-5 sæti og finnst það mjög raunhæft. Keppnin í kvöld verður ef til vil spennandi þótt Ísland er komið áfram. Danmörk kemst ábyggilega áfram þeir eru með gott lag með hljómsveitinni A Friend in London og lagið heitir A New Tomorrow.  Ég spái því velgengni í keppninni.

Írland er með lag sem gæti mögulega komist áfram í keppina á laugardaginn. Þetta eru tvíburar sem voru uppgötvaðir í hæfileikakeppni í Bretlandi fyrir um það bil tveimur árum. Þeir kalla sig Jedward og eru með danslagið Lipstick þetta lag gæti höfðað til unglinga og ungs fólks. Lagið hefur grípandi takt og ágætt viðlag.

Mér þykir líklegt að Svíþjóð komist áfram þrátt fyrir að þeir eru með takt að láni frá Boney M. Flytjandinn þeirra heitir Eric Saade og er með lagið Popular en hann gæti verið með betri söngrödd og ég vona að hann haldi tóni í laginu. Lagið er fínt og (show-ið) við lagið mjög flott og ekki verra að hann hafi útlitið með sér.

Þjóðirnar sem komast sjálkrafa þetta árið er Lena frá Þýsklandi sigurvegarinn frá því í fyrra með lagið Taken By A Stranger sem þykir sigurstranglegt. Hún er með ágætt lag en ég held að það sé ekki nógu grípandi til að vinna. Frakkland er með klassískan söng í ár söngvarinn heitir Amaurt Vassili og lagið heitir Sognu.

Ítalía  er með í fyrsta skipti í mörg ár þeirra framlag er djass lag  sem er ágætt. Raphael Gualazzi syngur lagið fyrir Ítalíu sem heitir Maddnes of Love. Bretland er með gott lag í ár en það er hljómsveitin Blue sem syngur lagið I Can.  Geta þeir unnið Eurovison eftir sorglegan árangur í mörg ár? Það er aldrei að vita og erfitt að spá fyrir um velgengi laganna í Söngvakeppni Evrópska Sjónvarpstöðva.

Einnig fer Spánn beint inn í aðalkeppina með söngkonuna Lucía Pérez og lagið Que Me Quiten Lo Bailao , They Can't Take The Fun Away From Me. Góða skemmtun næsta laugardag og áfram Ísland :0)

Skemmtileg vefsíða um eurovison

 http://www.eurovision.tv/page/dusseldorf-2011

Til gamans Rasputin með Boney M

http://www.metacafe.com/watch/223322/boney_m_rasputin/


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2011 23:29:28 / moneypenny

Söngvakeppni evrópska sjónvarpstöðva

Sælir lesendur góðir

Núna styttist óðum í söngvakeppni evrópska sjónvarpsstöðva sem fram fer í Düsseldorf í Þýskalandi í ár. Ég tel mig ekki vera nein sérfræðing í Euróvison en hef haft gaman af því að fylgjast með keppninni í gegnum árin. Ég fór að fylgjast aftur með söngvakeppninni fyrir rúmum 4 árum eftir nokkurt hlé.  Keppnin í fyrra var mun skemmtilegri en ég bjóst við og það var einnig skemmtilegt að geta sér til um hvaða lönd færu áfram í keppina n.k laugardag.

Í ár ætlar sigurvegari Euróvison frá því í fyrra, Lena að verja titilinn fyrir hönd Þýskalands sem hefur aldrei verið gert áður í sögu Euróvison. Johnny Logan vann þrisvar sinnum fyrir Írland en með margra ára millibili sem er árangur sem verður erfitt að toppa. Í ár tel ég að Íslendingar séu tildurulega ánægðir með framlagið sitt og ég held að vinir Sjonna eigi góða möguleika að komast upp í aðalkeppnina með lagið Coming Home.

Vinir Sjonna eru þeir fjórtándu í röðinni í fyrri forkeppninni sem er í kvöld, strákarnir eru búnir að undirbúa sig núna í nokkra daga. Keppnin er nokkuð hörð að mínu mati en ef þeir ná vel saman  og syngja vel í kvöld þá eru þeim allir vegir færir. Við erum með Noreig í riðlli en það er skvísan Stella Mwangi sem syngur lagið Haba Haba sem einhverjum hafa þótt sigurstranglegt.

Grikkland gæti mögulega komist áfram þar syngur Loucas Yiorkas lagið Watch me Dance en ég verð að sitja spurningar merki við rapparann Stereo Mike. Þetta er ágætt lag en spurning hvort það er nógu gott til að komast áfram í keppnina á laugardaginn. Sumir hafa spáð Finnlandi velgengni í keppninni og þykir keppandinn Axel Ehnström líklegur til að fljúga áfram og ekki síður myndarlegur.

Malta hefur verið nefnt líklegt til að komast áfram en það er Glen Vella sem syngur lagið One Life þetta er ágætt danslag sem kom mér á óvart. Tyrkland er með rokkband í ár og lagið virðist alveg ágætt. Lagið heitir Live It Up og er sungið af Yüksek Sadakat þetta er rokklag með sætum fiðlum. Þetta er hörð keppni og við verðum að bíða og sjá hverjir komast upp úr fyrri riðlinum og seinni riðillinn er líka forvitnilegur og áhugavert að sjá hver niðurstaðan verður að lokum.

Afsakið hvað þetta kemur seint inn þetta var skrifað fyrr í dag, áframhald seinna í vikunni um seinni riðillinn og keppina á laugardaginn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.04.2011 02:36:44 / moneypenny

Sítt strítt hár og stílistar sem eru með allt á hreinu

Kæru lesendur

Ég var að fara í gegnum fréttir og rakst á frétt af konu sem hefur safnað hári í 21 ár. Fyrisögn fréttarinnar er ,,Lét hárið vaxa í 21 ár" Hinn kínverska Jiang Aixiu sem kemur frá Fushun í Henan héraði. Jiang Aixiu fór síðast í klippingu á því herrans ári 1990. Hár hennar hefur nú mælst 3,6 metrar að lengd. ,,Ég ætlaði að láta klippa það margoft en hárgreiðslumaðurinn minn hvatti mig til að safna hárinu áfram því það væri svo sterkt."

Þannig útskýrir Aixiu þessa söfnunar áráttu fyrir kínversku fjölmiðlunum. Að hennar sögn bjóst hún ekki við að hárið myndi vax svona hratt. Á hverju ári hefur hárið vaxið um 20 cm en hún segir hárþvott mjög tímafrekann. Hún segist vera um það bil 2 tíma að þvo allt hárið á sér. Læknar hafa nú ráðlagt henni að klippa hárið sem tekur mikla orku frá henni og gæti skaðað heilsu hennar. Hún ætlar að láta kippa það á næstu dögum.

Morgunblaðið. 2011, 24.04 ,,Lét hárið vaxa í 21 ár Vefslóð:

http://www.mbl.is/folk/frettir/2011/04/18/let_harid_vaxa_i_21_ar/

Önnur frétt sem ég rakst á var frétt um matgæðinginn Nigellu sem sjónvarpsáhorfendur RÚV kannast við. Nigella komst í fréttirnar í vikunni þegar hún var að sólbaða sig við strendur Sydney í Ástralíu allklædd. Fyrirsögn fréttarinnar var ,,Hvar er stílistinn þinn Nigella?" Hún var stödd í borginni og mynduð í svörtum kjóll sem var einkar óklæðilegur og í lágum bandaskóm.

Af klæðnaðinum að dæma þarf Nigella Lawson mjög mikið af stílista að halda en hún er betur þekkt fyrir að vera ein kynþokkafyllsta kona Bretlands en virðist vera að stimpla sig hratt út. Að sögn stílistanna þá hafði kjólinn farið henni betur ef hún hefði farið í aðhaldssamfellu innan undir hann. Einnig hefði hún átt að vera í flugfreyjuhælum við kjólinn.

Þegar skór eru teknir saman við hæla klippa þeir af fótleggjunum sem gerir það að verkum að fótleggirnir virðast styttri. Þær konur sem ekki eru hávaxnar ættu að hafa þetta í huga.

Morgunblaðið. 2011, 24.04 ,,Hvar er stílistinn þinn Nigella?" Vefslóð:

http://www.mbl.is/folk/frettir/2011/04/23/hvar_er_stilistinn_thinn_nigella/

Ein önnur frétt sem ég las var um Kate Middleton með fyrirsögnina ,,Kate mun finna fyrir snobbinu." Þar segir að meirihluti Breta telur að konunglega brúðkaupið sem fer fram þann 29. apríl næst komandi muni styrkja stöðu konungsdæmisins í Bretlandi. Margir telja að Middleton muni líða fyrir snobb kóngafólksins og líða fyrir það að vera af almúgaættum.

Þetta sýnir skoðunakönnun í The Daily Mail sem birtist í gær. Niðurstöðurnar sýna að 51% fólks telja að brúðkaupið styrki breska konungsdæmið, 57% telja að Kate Middleton verði góð drottning sem er 12% aukning frá því í nóvember í fyrra. Brúðurinn virðist vera að vinna á í almenningsáliti. Hinsvegar segja um 32% óviss um að konu af almúgaættum verði tekið sem jafningja inn í konunglegu fjölskylduna. Í lok niðurstaðana segja 45% fólks efast um að foreldrar Middleton verði vel tekið af kóngafólkinu.

Morgunblaðið. 2011, 24.04 ,,Kate mun finna fyrir snobbinu.“ Vefslóð:

http://www.mbl.is/folk/frettir/2011/04/23/kate_muni_finna_fyrir_snobbinu/

Takk kærlega fyrir að lesa


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.04.2011 15:30:36 / moneypenny

Frægir Svíar á peningaseðla

Góðir lesendur

Ég var  einu sinni sem oftar að skoða mbl.is og rakst á frétt sem mér fannst áhugaverð en fyrirsögn fréttarinnar er Lindgren, Bergman og Garbo á peningaseðla. Sex heimsþekktir Svíar munu prýða nýja útgáfu á sænskum peningaseðlum sem verða settir í umferð árið 2014-2015. Á meðal þeirra sem verða á nýju peningaseðlunum eru meðal annars Ingmar Bergman og myndarlega leikonan Greta Garbo.

Einn ástsælasti rithöfundur Svía er Astrid Lindgren en hún mun einnig fá sinn eigin seðil, að sögn Seðlabanka Svíþjóðar. Talsmenn Seðlabankans segjast hafa valið fólk sem hefur lagt eitthvað markvert og jákvætt til menningararfleiðar Svíþjóðar á 20. öld. Að auki voru þær kröfur gerðar að hin útvöldu væru ,,vinsæl meðal almennings og væru helst, þekkt út um allan heim.

Andlit Astrid Lindgren mun vera á 20 króna seðlinum og Greta Garbo á 100 króna seðlinum. Hinn goðsagnakenndi leikstjóri Ingmar Bergman skartar sínu besta á 200 króna seðli sem ekki hefur áður verið prentaður. Hin þrjú sem hlotnast þessi heiður er söngkonan Birgit Nilsson, ljóðskáldið Evert Taube og fyrrum aðalritari Sameinuðu Þjóðanna, Drag Hammerskjöld.

Önnur létt og áhugaverð frétt er af konu í Georgíu sem kom sér í vandræði um daginn. Fyrirsögnin hljómar sem svo ,,Gömul kona kippti Armenum af netinu. Gömul kona í Georgíu á yfir höfði sér fangelsisdóm eftir að hún var svo óheppin að rjúfa netsamband í nágrannalandinu Armeníu. Armenar voru netsambandslausir svo klukkustundum skiptir þann 28. mars síðast liðið vegna skemmda á ljósleiðara sem liggja til landsins frá Georgíu.

Talsmaður Innanríkisráðaneytis Georgíu skýrði frá því í gær að 75 ára gömul kona hefði viðurkennt að hafa tekið ljósleiðarann í sundur í leit sinni af kopar til að selja í þorpi sem heitir Ksani. Hún hafði ekki áttað sig á að þarna hafði hún grafið sig niður á stærsta ljósleiðara landsins sem tengdi austurhluta Georgíu, Armeníu og Aserbaídsjan við internetið.

Konan hefur verið ákærð fyrir athæfið en í ljósi aldurs var henni sleppt lausri og fær að dvelja heima hjá sér á meðan á rannsókn og síðar réttarhöldum stendur.

Ég vona að hún sleppi við þungan dóm þótt að þetta hafi verið mjög óheppilegt fyrir notendur netsins í Armení, Georgíu og Aserbaídsjan.

 

Morgunblaðið. 2011, 07.04 2011 ,,Lindgren, Bergman og Garbo á peningaseðla. Vefslóð: http://www.mbl.is/frettir/erlent/2011/04/06/lindgren_bergman_og_garbo_a_peningasedla/

Morgunblaðið. 2011, 07.04 2011,, Gömul kona kippti Armenum af netinu. Vefslóð: http://www.mbl.is/folk/frettir/2011/04/06/gomul_kona_kippti_armenum_af_netinu/


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2011 17:22:43 / moneypenny

Hvað er góður vinur?

Kæru lesendur

Ég hef verið að hugleiða núna í einhverntíma hvað það er að vera góður vinur? Fólk er mannlegt og rekur sig gjarnan á í lífinu með því að gera mistök sem stundum bitna á fjölskyldu, vinum og kunningjum.  Þetta geta verið brotin loforð um að koma oftar í heimsókn, að koma í mat, um að halda trúnaði osfrv.

Þetta þurfa ekki að vera stórvægileg loforð  í augum fólks en oft má betur fara eins og stundum er sagt. Ég er einn af þessum sem hef rekið mig á samskiptum við annað fólk og margt hefur mátt betur fara í gegnum tíðina. Eftir því sem aldurinn sækir á þá átta ég mig á að ég geti gert eitthvað til að breyta þessu.

Í orðatiltækinu segir,,að vinur er gulls ígildi“. Hvernig er góður vinur? Ég hef spurt fólk í gegnum tíðina um hvað þeim finnst vera góður vinur. Fólk sem ég hef spurt vil gjarnan eiga einhvern trúnaðarvin eða einhvern til að tala við. Vin sem er tilbúin að hlusta þegar fólki líður illa eða þegar það er hamingjusamt.

 Vinur sem gæti verið tilbúin að rétta þér hjálparhönd þegar illa stendur á  það þarf alls ekki að vera neitt viðamikið t.d að gefa vini far eða hjálpa að undirbúa veislu. Vinur sem man eftir afmælinu þínu er góður vinur í mínum huga það eru ekki allir sem gefa sér þann tíma.

Einnig heyrði ég að góður vinur gæti verið stundvís þegar á reynir og jafnvel í hversdagsleikanum. Góður vinur gæti líka haft þann hæfileika að reyna að slá á léttar nótur þegar einhver hefur átt erfiðan dag.  Ég fletti í Stóru tilvitnunarbókinni og fann þar nokkrar tilvitanir um vináttu sem mér þótti áhugaverðar.

Greindur óvinur er verðmættari en heimskur vinur. Íslenskt máltæki

Góðar eru gjafir þínar,...en meira þykir mér verð vinátta þín og sona þinna. Brennu-Njáls saga Gunnar á Hlíðarenda við Njál.

Sumir menn eiga stóran vinahóp á meðan aðrir eiga aðeins vini sem þeir líkar við. Ókunnugur höfundur

Sönn vinátta er eins og góð heilsa. Gildi hennar getum við sjaldan metið fyrr en við höfum glatað henni. C.C Colton

Til góðs vinar liggja gagnvegir. Hávamál

Vinátta er ein sál, sem sest hefur í tveimur líkömum. Aristóteles

Stofnaðu ekki til skulda, lánaðu ekki peninga því þannig tapast oft bæði vinir og peningar. William Shakespeare

Niðurstaðan mín er sú að margur er pottur brotinn og ég þarf að læra að vera betri vinur vina mína og ef til vil er það niðurstaða fleiri. Ég get eingöngu reynt að bæta mig og reynt að sýna vinum meiri áhuga og hjálpa á slæmum stundum og samgleðjast þeim meira.

Ef einhver hefur áhuga á að segja sína skoðun er það vel þegið.

Heimildir:
Símon Jón Jóhannsson og Axel Ammendrup. 1996. Stóra tilvitnunarbókin, Vaka Helgafell hf. Reykjavík.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.03.2011 19:23:46 / moneypenny

Minnist vinar síns

Kæru lesendur

Ég rakst á áhugaverða frétt á mbl.is um leikarann Corey Feldman sem minntist vinar síns Corey Haim vegna þess að það er liðið eitt ár frá því að hann lést. Corey var þekktur sem barnastjarna og unglingastjarna á níunda áratugnum. Hann lék í 8 kvikmyndum með nafna sínum Corey Feldman.

Haim er talinn hafa látist úr ofneyslu eiturlyfja en hann hafði lengi glímt við eiturlyfjavandamál. Nafnanir léku saman í þó nokkrum kvikmyndum á sínum tíma en á meðal þeirra eru The lost Boys, Licence to drive og Blown away. Á tíunda áratugnum byrjaði að halla heldur betur undir fæti hjá þeim.

Árið 2007-2008 var gerður raunveruleikaþáttur um þá félaga ,,The two Coreys“. Í minningargrein sem Corey Feldman skrifaði segir hann að Corey Haim hafi verið besti vinur hans og að söknuðurinn væri mikill. Einnig gagnrýnir hann leikarasamtökin SAG fyrir að hafa ekki minnst vinar síns á nýliðinni Óskarsverðlunaafhendingu.

Feldmann sagði ,,Hann var ekki besti leikarinn sem sést hefur á tjaldinu og var ekki sá vinsælasti síðustu tíu ár. Hann læknaði heldur ekki krabbamein. En hann var einn mesti leiksigur sem barnastjarna hefur unnið.“ Hann er nr. 26 á lista yfir 100 vinsælustu barnastjörnur VH1 tónlistastöðvarinnar.

Hver var Corey Ian Haim? Hann var fæddur 23. desember árið 1971 í Toranto Kanada, dáin 10. mars 2010 í Burbank Kalifórníu. Corey lék í sinni fyrstu kvikmynd árið 1984 sem hét The Firstborn þar var hann var ungur drengur sem lendir í flóknum fjölskyldu aðstæðum.  Corey Haim fær áhuga á leiklist fyrir tilviljun vegna þess að hann fór með systur sinni í áheyrandaprufu.

Árið 1985 fór hann með hlutverk í sjónvarpsmynd sem hét A Time to Live en hann fékk verðlun fyrir leik sinn í þeirri mynd sem ungur strákur sem glímir við alvarlegan sjúkdóm. Önnur kvikmynd sem hann lék í sama árið hét Silver Bullet þar lék hann fatlaðan strák sem fer að leita að varðúlfi með systur sinni sem hrellir bæjarfélagið.

Þriðja kvikmyndin sem Corey Haim lék í hét Lucas en hún var frumsýnd árið 1986 þar leikur hann með Charlie Sheen og sýndi að hann var hæfileikum gæddur en hún sló ekki í gegn. Lucas er um 14 ára gamlan dreng sem er furðulega greindur og á erfiðleikum félagslega.

Árið 1987 fékk Corey Haim eitt að aðalhlutverkunum í kvikmynd Joel Schumacher sem hét The Lost Boys. Ári eftir lék hann í frægri unglingamynd sem hét Licence to drive og svo kemur kvikmyndinn Blown Away í kjölfarið árið 1993.

Hann var jarðaður í næði að ósk fjölskyldu hans en vegna þess að hann var gjaldþrota þá hjálpaði vefsíðan Startifacts en hann seldi hluti úr fórum sínum þar inni. Vefsíðan gaf $20.000 til að fjölskyldan gæti flutt hann til heim til Kanda þar sem hann var jarður og keyptu einnig legsteinn fyrir hann.

Heimildir http://feeds.mbl.is/folk/frettir/2011/03/11/corey_minnist_coreys/
Morgunblaðið
http://www.imdb.com/name/nm0000433/bio
The Internet Movie Database
dags 11.03 2011


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.02.2011 16:46:46 / moneypenny

Forvitnilegar fréttir

Sælir lesendur góðir

Ég rakst á nokkuð forvitnilega frétt á mbl.is þessa vikuna. Fréttin fjallar um bandarískan einkaspæjara sem sérhæfir sig í listmunum segist hafa sannanir fyrir því að stytta sem fannst í úldnum pappakassa í ítalskri fornmunabúð væri eftir Michengelo ítalska endurreinsarmálarann.

 ,,Þegar ég sá styttuna fyrst varð ég orðlaus í 10 mínútur. Hún var svo falleg“ sagði Roy Doliner við APF fréttastofuna í Róm þar sem bandaríski einkaspæjarinn var að kynna bók sína um þennan merkilega fund.

Styttan er af Maríu mey og Jesú í fangi hennar og kallast á frummáli sínu ,,Madonna della Febbre“. Hann segist hafa vitað um leið að þetta væri verk Michengelos. Því miður eru ítalskri listfræðingar ekki samála honum en segja styttuna vera verk samtímamanns Michengelos, Andrea Bregno.

Andrea Bregno var einnig endurreisnarmyndhöggvari en þeir voru uppi á 15. og 16. öld. Doliner opinberaði fund sinn í desember síðast liðnum en hann vil að sjálfsögðu ekki gefa upp hvar styttan er geymd en blaðamenn og ljósmyndarar hafa fengið að bera styttuna augum.

Roy Doliner er sérfræðingur í ýmsum leyndarmálum sem tengjast Michengelo en hann skrifaði meðal annars bók um leynitákn sem falin eru á lofti Sixtusarkapellunnar í Róm sem Michengelo var fengin til að mála af Páfa.

Önnur sérkennileg frétt er það um að þegar kona nokkur í Bandaríkjunum hafði ekki pantað pítsur í 3 daga fór pítsusendilinn að óttast um fastakúna sinn. Sendilinn gerði sér far til að kanna hvort allt væri í lagi hjá konunni. Þá kom í ljós að konan hafði dottið og ekki náð í síma til að hringja á hjálp.

Konan var fastakúnni á pítsastaðnum og hafði pantað sér pítsur þar á hverjum degi í þrjú ár. Að sögn lögreglunar telja þeir líklegt að pítsusendilinn samviskusami sem vinnur hjá Dominos hafi bjargað lífi konunnar með umhyggju sinni.

Á mánudag sagði yfirmaður sendilsins Susan Guy að þegar konan hafði ekki hringt í þrjá daga krafðist Sendilinn að fara og líta eftir með konunni. Þegar hún kom ekki til dyra hringdi Guy á lögregluna sem braut niður hurðina og þar fannst konan á gólfinu. Hún hafði dottið á laugardag og komst ekki í síma til að hringja í lögregluna.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2011 01:06:09 / moneypenny

Gagn og gaman að læra

Sælir góðir lesendur

Höfundur hef látið lítið á sér kveða síðustu tvær vikur eftir að Heimsmeistarakeppninn í handbolta í Svíþjóð lauk enn strákarnir okkar stóðu sig mjög vel. Ef til vil hafði þjóðin háar væntingar eftir frábæran árangur á Ólympíleikum árið 2008 og Evrópumótinu árið 2010. Bloggið heldur áfram uppteknum hætti um léttar fréttir og hugleiðingar um málefni líðandi stundar.

Um miðjan janúar hóf ég spænskunám eftir nokkra ára hlé, námið byrjaði frekar erfiðlega eftir að nemandinn var töluvert ryðgaður. Hann fór ef til vil aðeins fram úr sjálfum sér með því að vilja fara á námskeið sem var fyrir nemendur sem voru lengra komnir vegna lítilar þáttöku á því stígi sem hann átti að hefja nám. Höfundi til undraverðrar ánægju hefur honum farið töluvert fram.

Námskeiðið er talnámskeið og fer nánast allt fram á spænsku og þá reynir á að halda einbeitingu og halda í við kennarann. Þetta er reglulega skemmtilegt nám og tungumálið er fallegt en málfræðin getur verið svolítið flókin sem var eitt af því sem höfundur hefur í gegnum tíðina flækkt fyrir sér. Í þetta skipti ætlar hann að sýna náminu þolinmæði og stunda heimanám af samviskusemi.

Eins og áður hefur komið fram er  tungumálanámið svolítið krefjandi og hópurinn les stutta texta í tímum og leysir nokkur önnur stutt verkefni. Einnig er heimanámið stundum þungt ef nemandinn er ekki samviskusamir og mælir höfundur með því að sinna því eins best og hver getur. Heimnámið byggist meðal annars á textum sem þarf að lesa vel og glósa, finna andstæður orða, skrifa stutta texta og  skrifa hvað orðin þýða á íslensku.

Ég mæli með að hefja tungumálamálanám en fólk getur sótt um styrk hjá stéttarfélagi sínu til að niðurgreiða námskeiðið. Þetta er alveg ofsalega gaman og ég vonast til að geta lært töluvert meira og taka aðeins meiri framförum þrátt fyrir að hafa tekið nokkrar framfari nú þegar. Námskeiðið þarf ekki að vera tungumála námskeið það getur verið námskeið í að prjón, listmálun, dansnámskeið, jóga og hugleiðsla og eða hvað sem þér dettur í hug.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 20493